Hugleiðingar forða- og eðlisefnafræðistúdínu |
... beðist er afsökunar á nördaskap ... |
28.4.06
Afstæð fegurð Ég var djúpt sokkin í lestur um Fourier-ummyndanir í gær þegar það rifjaðist skyndilega upp fyrir mér að jafnan þykir fegursta jafna stærðfræðinnar*. Ástæða þess ku vera sú að hún inniheldur allar merkilegustu og mikilfenglegustu tölur fræðigreinarinnar. Dæmi svo hver fyrir sig ... *Heimild: Reynir Axelsson sem kenndi mér Stærðfræðigreiningu II og III forðum daga
27.4.06
Mikið hrikalega er próflestur leiðinlegur. Að vanda fékk ég líka glataða próftöflu: 5. maí: Environmental Geochemistry 6. maí: Stærðfræðigreining IVB Næstu dagar munu því fara í samhliða lærdóm fyrir prófin tvö. Vúhú...
24.4.06
Hvernig stendur á því að jólasnjórinn fellur 24. apríl en rauð jól eru árlegt brauð? Spurning hvort exbé taki ekki að sér að lofa bragarbót á þessu. Kosningaloforð um jólasnjó í desember myndi sóma sér vel í loforðasúpu þeirra fyrir komandi sveitastjórnakosningar.
20.4.06
Sumar í þrívídd Margt hefur drifið á daga mína frá síðustu færslu og trónir kvartaldarafmæli mitt þar á toppnum. Páksarnir komu og fóru með Rís-eggi. Sumarið er líka loksins komið sem er vel því að ég er komin með nóg af roki og snjúfjúki. Gott er að vita til þess að svoleiðis sviptingar þurfa nú að bíða til næsta vetrar. Ég hyggst fagna sumrinu með sérstæðum hætti þetta árið: tölta upp í skóla og sækja þrívíddargleraugun mín. Gleraugun nota ég svo til að skoða þvívíðar kristallamyndir. Það getur verið erfiðleikum háð að skoða þrívíðar myndir á tvívíðum tölvuskjá og þá er gott að grípa til gleraugnanna góðu.
5.4.06
Haldiði að eðalbandið Take That sé ekki bara á leiðinni að taka upp nýja plötu. Nú hljóta yngismeyjar um alla Evrópu að gleðjast. Ég er a.m.k. í skýjunum enda hafa undanfarin tíu ár verið ansi mögur ... svona tónlistarlega séð ;o)
4.4.06
Nördið ég Fyrr í kvöld valdi ég nokkur námskeið sem ég hef áhuga á að taka í doktorsnáminu sem ég byrja í næsta haust. Námskeiðislistinn leit svona út: Numerical Modeling of Environmental Flows Subsurface Nuclear Technology Chemical Kinetics in Reactive Flow eða Environmental Chemical Kinetics (gat ekki valið á milli) Þegar ég leit yfir listann gerði ég mér grein fyrir því að ég er nörd. Best að kaupa flösusjampó og þykkari gleraugu á morgun.
|
Bakhliðin Hver: Edda Sif Hvar: Reykjavík Hvaðan: ½ Dani & ½ Íslendingur Hvað: Meistaranám í eðlisefnafræði Hvernig: Leit að hentugri vetnisgeymslu með kenni-legum reikningum á málmhýdríðum Hvenær: Haust '04 - Haust '06
Skólinn
Verkefni, skýrslur o.fl. Meistaraverkefni.
Myndir
Skoðaðu myndirnar mínar
Bloggarar
Lindi Dagný Egill Kristín Sigga & Maggi
Gamalt
03/01/2002 - 03/31/2002
04/01/2002 - 04/30/2002 05/01/2002 - 05/31/2002 06/01/2002 - 06/30/2002 07/01/2002 - 07/31/2002 08/01/2002 - 08/31/2002 09/01/2002 - 09/30/2002 10/01/2002 - 10/31/2002 11/01/2002 - 11/30/2002 12/01/2002 - 12/31/2002 01/01/2003 - 01/31/2003 02/01/2003 - 02/28/2003 03/01/2003 - 03/31/2003 04/01/2003 - 04/30/2003 05/01/2003 - 05/31/2003 06/01/2003 - 06/30/2003 07/01/2003 - 07/31/2003 08/01/2003 - 08/31/2003 09/01/2003 - 09/30/2003 10/01/2003 - 10/31/2003 11/01/2003 - 11/30/2003 12/01/2003 - 12/31/2003 01/01/2004 - 01/31/2004 02/01/2004 - 02/29/2004 03/01/2004 - 03/31/2004 04/01/2004 - 04/30/2004 05/01/2004 - 05/31/2004 06/01/2004 - 06/30/2004 07/01/2004 - 07/31/2004 08/01/2004 - 08/31/2004 09/01/2004 - 09/30/2004 10/01/2004 - 10/31/2004 11/01/2004 - 11/30/2004 12/01/2004 - 12/31/2004 01/01/2005 - 01/31/2005 02/01/2005 - 02/28/2005 04/01/2005 - 04/30/2005 05/01/2005 - 05/31/2005 06/01/2005 - 06/30/2005 09/01/2005 - 09/30/2005 10/01/2005 - 10/31/2005 11/01/2005 - 11/30/2005 12/01/2005 - 12/31/2005 01/01/2006 - 01/31/2006 03/01/2006 - 03/31/2006 04/01/2006 - 04/30/2006 |