Hugleiðingar forða- og eðlisefnafræðistúdínu |
... beðist er afsökunar á nördaskap ... |
23.9.05
Ég var við það að gefa út dánartilkynningu síðunnar þegar töfraorðið -klukk- vakti hana skyndilega af sumardvala. Klukkið tröllríður bloggheimum um þessar mundir og aragrúi fólks gefur upp undarlegustu staðreyndir um sjálft sig. Ég vil að sjálfsögðu vera í takt við tímann og læt því flakka fimm staðreyndir um sjálfa mig: 1 - Önnur framtönnin mín hefur brotnað 14 sinnum en hin einu sinni. Sú fyrrnefnda brotnaði t.a.m. einu sinni þegar ég var á diskóteki. 2 - Þegar ég fæ mér brauðsneið eða rúnnstykki ýti ég létt með gómum vísi- og löngutangar ofan á brauðið/rúnnstykkið áður en ég gæði mér á því. Þennan sið apaði ég upp eftir afa mínum í bernsku. 3 - Mér býður við álum og hrossaflugum þar sem stærðarhlutföll líkamshluta þeirra samsvara sér engan veginn. (Pæling: á orðið líkami einungis við menn eða er hægt að tala um líkama dýra?) 4 - Báðir vísifingurnir mínir eru bognir. Eigin athuganir benda til þess að um 5 gráðu beygju frá láréttu sé að ræða. Tekið skal fram að athuganirnar byggjast ekki vísindalegum grunni og því má gera fyrir að skekkjumörk séu um 2 gráður. 5 - Ég er 24 ára og hef setið samfleytt á skólabekk í átján ár. Ennþá eru fjögur ár í að ég nái markmiðinu - doktorsgráðu. Ég get engan veginn sætt mig við meistaragráðuna sem mér hlotnast að ári liðnu - Dr. Edda hljómar alltof vel... Af mér er annars lítið að frétta þó að margt hafi drifið á daga mína í sumar. Ég hélt t.a.m. minn fyrsta fyrirlestur á stórri ráðstefnu. Því fylgdi mikið stress en það var samt lúmskt gaman (a.m.k. eftir á að hyggja). Ég dó næstum því úr kulda í útileigu í Skaftafelli, spókaði mig um í sumarblíðu í Kaupmannahöfn og rumpaði frá mér tæplega þrjúhundruð síðna skýrslu fyrir OR.
|
Bakhliðin Hver: Edda Sif Hvar: Reykjavík Hvaðan: ½ Dani & ½ Íslendingur Hvað: Meistaranám í eðlisefnafræði Hvernig: Leit að hentugri vetnisgeymslu með kenni-legum reikningum á málmhýdríðum Hvenær: Haust '04 - Haust '06
Skólinn
Verkefni, skýrslur o.fl. Meistaraverkefni.
Myndir
Skoðaðu myndirnar mínar
Bloggarar
Lindi Dagný Egill Kristín Sigga & Maggi
Gamalt
03/01/2002 - 03/31/2002
04/01/2002 - 04/30/2002 05/01/2002 - 05/31/2002 06/01/2002 - 06/30/2002 07/01/2002 - 07/31/2002 08/01/2002 - 08/31/2002 09/01/2002 - 09/30/2002 10/01/2002 - 10/31/2002 11/01/2002 - 11/30/2002 12/01/2002 - 12/31/2002 01/01/2003 - 01/31/2003 02/01/2003 - 02/28/2003 03/01/2003 - 03/31/2003 04/01/2003 - 04/30/2003 05/01/2003 - 05/31/2003 06/01/2003 - 06/30/2003 07/01/2003 - 07/31/2003 08/01/2003 - 08/31/2003 09/01/2003 - 09/30/2003 10/01/2003 - 10/31/2003 11/01/2003 - 11/30/2003 12/01/2003 - 12/31/2003 01/01/2004 - 01/31/2004 02/01/2004 - 02/29/2004 03/01/2004 - 03/31/2004 04/01/2004 - 04/30/2004 05/01/2004 - 05/31/2004 06/01/2004 - 06/30/2004 07/01/2004 - 07/31/2004 08/01/2004 - 08/31/2004 09/01/2004 - 09/30/2004 10/01/2004 - 10/31/2004 11/01/2004 - 11/30/2004 12/01/2004 - 12/31/2004 01/01/2005 - 01/31/2005 02/01/2005 - 02/28/2005 04/01/2005 - 04/30/2005 05/01/2005 - 05/31/2005 06/01/2005 - 06/30/2005 09/01/2005 - 09/30/2005 10/01/2005 - 10/31/2005 11/01/2005 - 11/30/2005 12/01/2005 - 12/31/2005 01/01/2006 - 01/31/2006 03/01/2006 - 03/31/2006 04/01/2006 - 04/30/2006 |