Hugurinn á það til að reika á hina ýmsu staði meðan á próflestri stendur. Áðan stóð ég hugann minn t.d. að því að útbúa lista yfir það sem ég þyrfti að upplifa/eignast fyrir þrítugt. Eftirfarandi er komið á listann:
1. Fara á Radiohead tónleika (og helst Madonnu líka)
2. Eignast Prada/DKNY flík(ur)
3. Fara til New York
4. Eignast eigin húsnæði með uppþvottavél og þvottahúsi
Þetta með uppþvottavélina og þvottahúsið kemur lesendum e.t.v. spánskt fyrir sjónir en ég er bara komin með hundleið á endalausu uppvaski og því að þurfa að fara út í frost og kulda til að setja í eða taka úr þvottavél.