!
Hugleiðingar forða- og eðlisefnafræðistúdínu
Hugleiðingar forða- og eðlisefnafræðistúdínu
... beðist er afsökunar á nördaskap ...
9.6.05

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir geðheilsu Eddu Sifjar Aradóttur. Síðast sást til geðheilsunnar þann 1. þessa mánaðar. Talið er að geðheilsan hafi hlaupist á brott er henni varð ljóst að Edda Sif myndi ekki aðhafast neitt utan vinnu sinnar fyrr en 20. júní. Ef einhverjir telja sig hafa orðið geðheilsunnar varir eru þeir vinsamlegast beðnir um að koma skilaboðum áleiðis til lögreglu eða eiganda.